LJÓSLAGNIR

Ljósleiðaraframkvæmdir

Ljósleiðaraframkvæmdir Orkufjarskipta skiptast í tvo flokka:

  • Hringtenging: Ljósleiðarastofn um landið. Tveir hringir um Vestur- og Austurland, sem skarast um hálendið. Vinnuheitið er ,,Áttan“ í daglegu tali, en hún tengir saman helstu mannvirki í raforkukerfinu.
  • Styrkingarverkefni: Ljósleiðarastofn lagður út frá Áttunni til minni mannvirkja í raforkukerfinu. Markmiðið er það sama, að tryggja örugg fjarskipti fyrir raforkukerfið.

Það er stefna Orkufjarskipta að lágmarka þau áhrif sem starfsemin kann að hafa á umhverfið og leggur félagið metnað í að fylgja öllum lagalegum kröfum. Starfsemin er vottuð samkvæmt gæða-, umhverfis-, vinnuverndar- og upplýsingaöryggisstöðlum. Sjá nánar á síðunni Um okkur.

„Birgir“ merkir hér það fyrirtæki eða einstaklingur sem sér Orkufjarskiptum fyrir vörum eða þjónustu.
LJÓSLAGNIR

Kröfur til verktaka og birgja

Margir verktakar koma að starfsemi félagsins. Þeir vinna bæði sjálfstætt og með starfsmönnum Orkufjarskipta að þeim verkum sem samið hefur verið um. Gott samstarf og samhæfð vinnubrögð skapa árangur og gerir stjórnendum Orkufjarskipta kleift að setja markmið í gæða, umhverfis-, vinnuverndar- og upplýsingaöryggismálum. Í viðhengi hér fyrir neðan eru skilmálar félagsins sem byggja á kröfum gildandi laga, regla og þeirra stjórnunarstaðla sem félagið fylgir og eru verktökum og eftirlitsmönnum félagsins til leiðbeiningar.


Siðareglur Orkufjarskipta
Leit