Fréttir
Hér má sjá fréttaskot sem tengjast starfsemi félagsins.
Bjarni lætur af störfum og Jón Ríkharð tekur við
Þann 1. desember sl. lauk Bjarni M. Jónsson störfum sem framkvæmdastjóri Orkufjarskipta eftir langt og farsælt starf.
Bjarni hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun þess í núverandi mynd eða frá ársbyrjun 2011.
Stjórn þakkar Bjarna hans framlag við uppbyggingu félagsins á liðnum árum.
Jón Ríkharð Kristjánsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri félagsins og hóf hann störf 1. desember.
Á sama tíma hóf Sigríður Inga Guðmundsdóttir störf sem nýr fjármálastjóri félagsins.
Við bjóðum þau bæði velkomin til starfa.