Um okkur
Um okkur
Orkufjarskipti hf. var stofnað í desember árið 2011 og er félagið í eigu Landsnets, Landsvirkjunar og Rariks. Félagið rekur öflugt fjarskiptakerfi sem mætir kröfum raforkukerfisins um áreiðanlegt og traust fjarskiptanet.
Hlutverk og skipulag
Hlutverk Orkufjarskipta er að reka fjarskiptakerfi fyrir raforkukerfin í landinu á öryggismiðuðum forsendum.
Núverandi fjarskiptakerfi félagsins byggir á grunnkerfi sem var upphaflega í eigu Fjarska, Landsnets og Landsvirkjunar. Unnið er að frekari uppbyggingu og endurnýjun á fjarskiptakerfinu sem mun í framtíðinni alfarið byggja á ljósleiðaratækni með tvöföldum sambandaleiðum til orku- og tengivirkja raforkukerfisins.
Orkufjarskipti bjóða ekki upp á almenna fjarskiptaþjónustu. Félaginu er heimilt að leigja fyrirtækjum með fjarskiptaleyfi frá Fjarskiptastofu umframforða sinn af ljósleiðarasamböndum.

Stjórnkerfi og samfélagsábyrgð
Orkufjarskipti leggja mikla áherslu á fagleg, öguð og vönduð vinnubrögð við rekstur félagsins. Stjórnunarkerfi gæða-, upplýsingaöryggis, umhverfis- og vinnuverndarmála félagsins eru vottuð af BSI á Íslandi, vottunarskírteini nr. FM 599851 fyrir gæðastjórnun, IS 648477 fyrir upplýsingaöryggisstjórnun, EMS 648480 fyrir umhverfisstjórnun og OHS 669409 fyrir stjórnun vinnuverndarmála. Sjá staðfestingu á vefsíðu BSI.
Félagið starfar samkvæmt siðareglum og gerir kröfur til þjónustuaðila sem taka m.a. á félagafrelsi og rétti til kjarasamninga, barnavinnu og umhverfismála.Félagið hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2012. Listann má finna á síðu Creditinfo ásamt nánari upplýsingum um hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi www.creditinfo.is/framurskarandi