Ljóslögn Orkufjarskipta á milli Heiðasporðs og Sveinatungu

Verkefnið hófst í júlí og lauk í september 2020. Með lagningunni kláraðist tæplega 16 km áfangi á leiðinni milli tengivirkjanna í Hrútatungu í Hrútafirði og Vatnshamra í Borgarfirði.  Ástæða lagnarinnar er m.a. að tvítengja tengivirkin með ljóslögn og auka þar með raforkuöryggi þessara staða og landshluta.

Hönnun lagnaleiðarinnar var í höndum Orkufjarskipta. Þegar fyrir lá samþykki landeigenda, umsagnir Umhverfisstofnunar, Minjastofnunar, Hafrannsóknastofnunar og Veiðifélags Norðurár, heimild Fiskistofu, samþykki forsætisráðuneytisins og samþykki Vegagerðarinnar, var framkvæmdaleyfi Borgarbyggðar veitt í desember 2019, en vegna umhverfisskilyrða á verkstað var ekki hægt að hefjast handa fyrr en í júlí 2020.
Steypustöð Skagafjarðar sá um jarðvinnu í verkefninu.


Vinna við ljóslögn í Norðurárdal.

Ljóslögn í Norðurárdal.

Myndirnar eru teknar við framkvæmdir í Norðurárdal sumarið 2020.

Birt 2. desember 2020.


Orkufjarskipti hf.

Krókhálsi 5c · 110 Reykjavík

Sími 515 9700

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skrifstofan er opin kl. 9:00-15:00 virka daga.

Styrkir

Kennitala: 561000-3520

 

Stjórnunarkerfi félagsins eru vottuð af BSI á Íslandi